Month: May 2014

Markov-líkön á íslensku

Í áfanganum Heilsuhagfræði II sem ég kenndi í vor fór ég yfir Markov-ferilhópalíkön (e. Markov cohort model) sem eru afar algeng í heilsuhagfræðilegum greiningum. Án þess að kenna notkun þessara líkana hér, langar mig í þessari færslu fara yfir tillögur mínar að þýðingum á helstu hugtökum þessara líkana, en eins og í ýmsum öðrum kimum fræðigreina verða fljótt til mörg íðorð til að lýsa því sem fram fer. Mörg af þessum hugtökum vantar í þau orðasöfn sem til eru, en ég hef litið til Orðabanka íslenskrar málstöðvar, Snöru (sem aftur er samsafn margra orðabóka) og íðorðaskrá í faraldsfræði. Allar athugasemdir og tillögur að betrumbótum eru vel þegnar.

Flokkar: Heilsuhagfræði, Líkön